Fjarðargangan fer fram á Ólafsfirði 13. og 14. febrúar 2026 og við fögnum 40 ára afmæli!
Eins og undanfarin ár bjóðum við upp á frábæra upplifun í Fjarðargöngunni. Brautarstæðið er einstakt og liggur meðal annars eftir götum Ólafsfjarðarbæjar. Stemmningin er frábær og allir mættir til að skora á sjálfan sig, taka þátt og hafa gaman. Vissulega er keppni líka, frábær verðlaun, happdrætti, kjötsúpa, grænmetissúpa, úrdráttarverðlaun og ég veit ekki hvað og hvað.
Við byrjum á föstudagskvöldinu með “NÆTUR” Fjarðargöngu og bjóðum við upp á bæði 15 km fyrir 17 ára og eldri auk 7,5 km sem er opið fyrir alla sem treysta sér til og langar að prófa. Frábær upplifun að ganga að kvöldi til og brautin öll nánast upplýst. Höfuðljós er að sjálfsögðu skylda.
Laugardaginn 14.febrúar verður svo "aðal" Fjarðargangan þar sem öllu verður til tjaldað. Reyndar munum við ekki spara neitt við nætur gönguna, en leggjum jú aðal áherslu á laugardaginn með alvöru afmælisveislu.
Eins og allir vita hefur verið uppselt í Fjarðargönguna undanfarin ár. Við höldum áfram að hafa fjöldatakmarkanir en nú verða 500 rásnúmer til sölu í Fjarðargönguna 10.febrúar. Fjöldatakmörkun í NÆTUR Fjarðargönguna verður 300 rásnúmer.
Stemmningin er mögnuð í Fjarðargöngunni, öll aðstaða í miðjum bænum, startað í miðbænum, einstök umgjörð og við hlökkum til að taka á móti ykkur.
Fjöldatakmörkun í Fjarðargönguna 10.feb 2024 er 500 rásnúmer samtals.
Fjarðargangan 30 km fyrir 17 ára og eldri (Íslandsganga SKÍ)
Skráningargjald 10.000 kr. til og með 8.febrúar, eftir það hækkar skráningargjald í 14.000 kr. Skráningu lýkur 14.febrúar kl. 09:00. Dregið í happdrætti úr skráðum þátttakendum 6.des og 2.jan. Allir sem taka þátt í 30 km fá veglegan verðlaunapening og halda númeri sínu til minningar.
Fjarðargangan 15 km fyrir 13 ára og eldri
Skráningargjald 7.000 kr. til og með 8.febrúar, eftir það hækkar skráningargjald í 9.000 kr. Skráningu lýkur 14.febrúar kl. 09:00. Dregið í happdrætti úr skráðum þátttakendum 6.des og 2.jan. Allir sem taka þátt í 15 km fá verðlaunapening og halda númeri sínu til minningar.
3,5 eða 7,5 km ekkert aldurstakmark (þú ræður vegalengdinni)
Skráningargjald 3.000 kr, Skráningu lýkur 14.febrúar kl. 09:00.allir þátttakendur fá verðlaunapening og halda númeri sínu til minningar.
Barnagangan 7 ára og yngri ???
Skráningargjald 1.000 kr. Skráningu lýkur 14.febrúar kl 09:00, allir þátttakendur fá verðlaunapening og halda númeri sínu til minningar.
Fjöldatakmörkun í “NÆTUR” Fjarðargönguna 9.feb 2024 er 300 rásnúmer samtals.
NÆTUR Fjarðargangan 13.febrúar 15 km fyrir 17 ára og eldri.
Skráningargjald 7.000 kr. til og með 8.febrúar, eftir það hækkar skráningargjald í 9.000 kr.Skráningu lýkur 13.febrúar kl. 18:00. Dregið í happdrætti úr skráðum þátttakendum 6.des og 2.jan. Allir sem taka þátt í 15 km fá verðlaunapening og halda númeri sínu til minningar.
NÆTUR Fjarðargangan 13.febrúar 7,5 km fyrir ALLA sem treysta sér til.
Skráningargjald 4.000 kr. til og með 8.febrúar, eftir það hækkar skráningargjald í 6.000 kr. Skráningu lýkur 13.febrúar kl. 18:00. Dregið í happdrætti úr skráðum þátttakendum 6.des og 2.jan. Allir sem taka þátt í 15 km fá verðlaunapening og halda númeri sínu til minningar.
Báðar göngurnar !!
Nætur Fjarðargangan 15 km 13.febrúar og Fjarðargangan 30 km 14.febrúar 17 ára og eldri. Skráningargjald 13.000 kr. til og með 8.febrúar, eftir það hækkar skráningargjaldið í 18.000 kr.
Nánari upplýsingar:
Skráning fer fram á netskraning.is/fjardarganga
Facebook: Fjarðargangan
Verið hjartanlega velkomin í Fjallabyggð!