Af bikarmótum dagsins

Á bikarmóti í svigi kepptu þær Bríet Brá, Hanna Valdís og Natalía Perla. Bríet lauk keppni í 27.sæti, Hanna í 34.sæti en Natalía var dæmd úr leik eftir fyrri ferð. Á morgun verður aftur keppt í svigi og hefst fyrri ferð hjá stelpunum kl 13:45.

Á bikarmóti í skíðagöngu var keppt með hefðbundinni aðferð og gengu þær Guðrún Ósk, Karen Helga, Ragnhildur Vala og Svava Rós 3,5km. Ragnhildur varð í 2.sæti, Karen 4.sæti, Guðrún 5.sæti og Svava í 6.sæti. Á morgun keppa þær í 3,5km göngu með frjálsri aðferð og hefst keppni kl 11:40

Frábært að sjá krakkana á fullu og við óskum þeim góðs gengis á morgun.