Gluggi kominn í Tímatökuhúsið

Haukur og Rúnar ganga frá glugganum.
Haukur og Rúnar ganga frá glugganum.

Í dag var settur gluggi í tímatökuhúsið okkar. En húsið var reist í haust en eftir er að ganga endanlega frá ýmsum smámunum. Stórt skref var farið í dag þegar Haukur Sigurðsson gaf okkur glugga í húsið sem hann smíðaði. Nú er orðið tímatökuhæft í húsinu sem kemur sér frábærlega þar sem aðeins 5 dagar eru í Skíðamót Íslands. En SÓ í samstarfi við Skíðafélag Dalvíkur halda SMÍ í ár.