Rúmlega 70 manns á skíðagöngu námskeiði

Þjálfarar helgarinnar: Arnar, Jón Garðar, Sandra, Elsa Guðrún, Björk, Helgi Már og Svava (fremst)
Þjálfarar helgarinnar: Arnar, Jón Garðar, Sandra, Elsa Guðrún, Björk, Helgi Már og Svava (fremst)

Um helgina er enn eitt námskeiðið hjá okkur í samstarfi við Sigló Hótel og einnig námskeið fyrir ferðaskrifstofuna Mundo. Alls eru hjá okkur rúmlega 70 manns að læra á gönguskíði. Sem betur fer er enn snjór á golfvellinum og Skeggjabrekkudal en þar fer námskeiðið fram um helgina eins og síðustu helgi. Fólk virðist afskaplega ánægt með námskeiðin og kemur hingað til okkar ár eftir ár sumir hverjir.

Þjálfararnir okkar eru líka frábærir, en þeir samanstanda af frábæru fólki frá Skíðafélagi Ólafsfjarðar og Skíðafélagi Siglufjarðar Sigurborg.