Þorramót á Dalvík

Bríet Brá, Hanna Valdís og Natalía ásamt þjálfara okkar Sunnu Eir.
Bríet Brá, Hanna Valdís og Natalía ásamt þjálfara okkar Sunnu Eir.
Alpagreinakrökkunum var boðið að taka þátt á Þorramóti Skíðafélags Dalvíkur í stórsvigi í dag. Sjö krakkar frá SÓ mættu til leiks í þremur aldurshópum.
 
Bríet Brá Gunnlaugsdóttir (14-15 ára) og Natalía Perla Kulesza (12-13 ára) urðu báðar í öðru sæti í sínum aldursflokkum. Hanna Valdís Hólmarsdóttir varð svo aðeins 8 sekúntubrotum frá 3.sæti í 12-13 ára flokknum.  Frekari úrslit liggja ekki fyrir að svo stöddu en verða aðgengileg á www.skidalvik.is innan skamms. Allir þátttakendur 11 ára og yngri fengu verðlaun.
Flott mót hjá Dalvíkingum og aðstæður eins og best verður á kosið.
 
 8-11 ára: Olivier, Alexander og Maja..
6-7 ára: Olivia Mals