Tindöxl opnar í dag

Í dag 14. janúar er staðan alveg frábær hjá okkur. Við opnum skíðasvæðið í Tindaöxl kl 12:00 og verður opið til 16:00. Búið er að troða Bárubraut og einnig flæðarnar meðfram Ólafsfjarðarvatni. Brautirnar eru tengdar við afleggjarann að Hlíð.

Veitingadala í skálanum og skíðaleiga frá 12-16

Veður er gott, -4° og hægur vindur og nægur snjór.