Fjarðarhjólið 2024

Fjarðarhjólið 2024

Fjarðarhjólið verður haldið laugardaginn 7.september á Ólafsfirði. Boðið er upp á rafhjólakeppni í krefjandi braut auk þess sem í boði er skemmtihjól sem allir geta tekið þátt í óháð hvernig hjól eru notuð.

Eins og venja er með Fjarðargönguna þá verður fyrst og fremst hrikalega gaman hjá okkur í Fjarðarhjólinu! Flott umgjörð, tónlist, drykkjarstöðvar verða tvær í brautinni, tvö viðgerðarsvæði, veitingar eftir keppni, úrdráttarverðlaun, allir fá þátttöku verðlaun, en fyrst og fremst höfum við gaman!

Hér má sjá brautina fyrir Rafhjólakeppnina (væntanlegt)
Hér má sjá brautina fyrir Skemmtihjólið (væntanlegt)

Skráning hjá netskraning.is....

Vegalengdir í Fjarðarhjólinu:
30 km, RAFHJÓL, karlar og konur 17 ára og eldri, 6.900 kr. hækkar í 10.000 kr. 31.ágúst.
10 km, RAFHJÓL, karlar og konur, 13 ára og eldri, 4.900 kr. hækkar í 7.500 kr. 31.ágúst.
18km, skemmti hjól fyrir alla, hjólað kringum Ólafsfjarðarvatn, 3.500 kr. hækkar í 5.000 kr. 31.ágúst

Drög að dagskrá laugardaginn 7.sept:
8-10:30 Afhending mótsgagna (staðsetning nánar auglýst síðar)
11:00 Rafhjólaflokkur ræstur 10km og 30 km
11:00 Skemmtihjól 18km