Afmæliskaffi í Tjarnarborg

Sigurpáll Gunnarsson, Alda María Traustadóttir og Haukur Sigurðsson
Sigurpáll Gunnarsson, Alda María Traustadóttir og Haukur Sigurðsson

Í dag fagnaði Skíðafélag Ólafsfjarðar 25 ára afmæli. Kaffisamsæti var í Tjarnarborg þar sem farið var yfir sögu félagsins og þrír sjálfboðaliðar voru heiðraðir af SKÍ. Einnig var í boði fyrir gesti að prófa skíðaskotfimi en félagið á fjóra lazer riffla og skotmörk sem gestir gátu prófað.

Skíðafélag Ólafsfjarðar er vissulega ungt félag, stofnað 18.október 2001, en skíðasagan okkar nær mun lengra aftur og það byggir vel undir okkar unga félag. Í afmælisveislunni fór Kristján Hauksson, formaður, lauslega yfir sögu félagsins, sagði frá helstu framkvæmdum, kaupum á troðurum, uppbyggingu mannvirkja og fleiru. Farið var yfir mótahald félagsins og samstarf við Skíðafélag Dalvíkur um mótahald. Síðast en ekki síst þakkaði Kristján fyrir alla sjálfboðaliðana sem gera félagið eins öflugt og það er svo skemmir ekki fyrir að hafa sterka bakhjarla sem hafa heldur betur aðstoðað okkur í gegnum tíðina.

Ólafur Björnsson kom í afmælið sem fulltrúi SKÍ og heiðraði þrjá sjálfboðaliða sem hafa verið duglegir í gegnum tíðina. Alda María Traustadóttir fékk silfurmerki SKÍ, Sigurpáll Gunnarsson fékk Silfurmerki SKÍ og Haukur Sigurðsson fékk Gullmerki SKÍ.

Takk fyrir komuna allir!