Andrésar Andarleikarnir voru haldnir í 50.skipti á Akureyri 22.-25.apríl síðastliðinn. Dagskrá hófst á miðvikudeginum með skrúðgöngu og setningu mótsins, en met þátttaka var í ár á leikunum eða 1.084 keppendur. Keppt var í svigi, stórsvigi, skíðagöngu með hefðbundinni og frjálsri aðferð, boðgöngu, leikjabrautum í stórsvigi og skíðagöngu fyrir 4-8 ára, snjóbrettum í bretta krossi og bretta stíl. Ennfremur var svo keppt í skíðaskotfimi í fyrsta skipti á leikunum hjá 11 ára og eldri. Alvöru skíðaveisla og veðrið lék við mótsgesti ef frá er talið þoka sem setti strik í reikninginn á föstudegi.
Skíðafélag Ólafsfjarðar átti 36 keppendur á leikunum sem stóðu sig frábærlega, en af þessum flotta hópi voru 22 keppendur á aldrinum 4-8 ára og margir hverjir að stíga sín fyrstu skref á Andrés. SÓ hópurinn gisti eins og undanfarin ár á Hótel Hálöndum í góðu yfirlæti. Eins og svo oft áður stóðu krakkarnir sig gríðarlega vel og uppskáru 4 Andrésartitla, 8 silfur og 6 brons að ótöldum öllum stóru persónulegu sigrunum. Leikjabrautin var frábær þar sem yngstu krakkarnir stigu á svið í skemmtilegum brautum bæði í stórsvigi og skíðagöngu. Allir skemmtu sér vel og voru alsælir að "keppni" lokinni. Skíðaskotfimin var líka sérlega skemmtileg og komu okkar krakkar þar skemmtilega á óvart og náðu í 3 bronsverðlaun eftir frábærar skotseríur.
Í tilefni af 50 ára afmæli Andrésar Andarleikanna var meðal annars safnað yfir 1.000 myndum frá sögu leikanna sem hægt er að sjá hér....
Ekki má gleyma mótshöldurum SKA sem stóðu sig frábærlega í mótahaldinu, allt til algjörar fyrirmyndar!
Myndir frá leikunum er væntanlegar.....