Í dag hófst Bikarmót SKÍ í skíðagöngu á Ólafsfirði, veðrið setti strik í reikninginn þegar keppt var í sprettgöngu.
Alls voru 37 keppendur ræstir í dag í sprettgöngu með hefðbundinni aðferð. Keppendur eru frá SÓ, SKA, Ulli, SSS, SFÍ og SFS. Heldur hvasst var í dag en keppni hófst kl 17:00 með tímatöku og svo voru keyrð úrslit í öllum flokkum.
Allt um mótið má sjá hér.....
Keppni heldur áfram á morgun laugardag kl 11:00 en þá verður ræst út með hópstarti og gengið með frjálsri aðferð.