Bikarmót SKÍ í Bláfjöllum um helgina

Í kvöld var keppt í sprettgöngu á Bikarmóti SKÍ í Bláfjöllum. Frá SÓ voru Guðrún Ósk Auðunsdóttir, Karen Helga Rúnarsdóttir, Ragnhildur Vala Johnsdóttir og Svava Rós Kristófersdóttir mættar til leiks. Þær eru allar að keppa í fyrsta skipti á Bikarmótum og eru í flokki 13-14 ára.
Stelpurnar stóðu sig frábærlega, Ragnildur Vala var fyrst, Karen Helga önnur, Svava Rós fjórða og Guðrún Ósk sjötta.

Á morgun ganga stúlkurnar 3,5km með hefðbundinni aðferð og hefst keppni hjá þeim kl: 11:40 hæt er að sjá úrslit hér....

Á morgun keppa einnig í fyrsta skipti á Bikarmóti SKÍ þær Bríet Brá Gunnlaugsdóttir, Hanna Valdís Hólmarsdóttir og Natalía Perla Kulesza. Stelpurnar keppa í flokki 12-13 ára og hefst fyrri ferð kl: 9:30