Buch-Orkugangan á Húsavík í dag

SÓ Elítan: f.v. Helgi, Klemenz, Sigurbjörn, Óli Björn, Björk, Þorvaldur, Magnea, Helgi og Diljá.
SÓ Elítan: f.v. Helgi, Klemenz, Sigurbjörn, Óli Björn, Björk, Þorvaldur, Magnea, Helgi og Diljá.

Buch-Orkugangan er hluti ef Íslandsgöngu SKÍ og er haldin á Húsavík ár hvert. Lengsta vegalegnd var 25 km og þar stóð okkar fólk sig frábærlega. Fyrstur í mark af öllum keppendur var Helgi Reynir Árnason og á hæla honum Sigurbjörn Þorgeirsson sem sigurðu þar með sína keppnisflokka, Helgi í 35-49 ára og Bjössi í 50-59 ára. Þorvaldur Sveinn varð í öðru sæti í 35-49 ára, Björk Óladóttir sigarði 35-39 ára, Magnea Guðbjörnsdóttir sigarði 50-59 ára, Klemens Jónsson varð þriðji í 10km, Helgi Jóhannsson í fimmta sæti í 10km og Óli Björn Þorvaldsson í þriðja sæti í 5km göngu. Diljá Helgadóttir kláraði ekki 25km gönguna.

Frábær árangur hjá okkar fólki og óskum við þeim innilega til hamingju og Húsvíkingum fyrir flott mót.