Á aðalfundi Skíðafélags Ólafsfjarðar, sem haldinn var í maí, var samþykkt að félagsgjald fyrir árið 2026 yrði 3.000 kr.
Nú hafa verið sendar út 154 valgreiðslukröfur til þeirra sem skráðir eru í félagið samkvæmt félagatali. Félagsgjöld eru mikilvægur þáttur í fjáröflun félagsins og vonum við að félagar taki vel í greiðsluna og styðji þannig við áframhaldandi starf SÓ.
Við tökum að sjálfsögðu fagnandi á móti nýjum félögum. Hægt er að skrá sig í Skíðafélag Ólafsfjarðar hér á heimasíðunni undir „Félagið“
Þeir sem óska ekki lengur eftir að vera skráðir í félagið eru vinsamlegast beðnir um að senda okkur tölvupóst á skidafelagolf@gmail.com