Fjarðargangan haldin í miðbænum

Liðsmenn TCC í Fjarðargöngunni. F.v. Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson, Björk Óladóttir, Magnea Guðbjörn…
Liðsmenn TCC í Fjarðargöngunni. F.v. Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson, Björk Óladóttir, Magnea Guðbjörnsdóttir, Kristján Hauksson, Jónína Kristjánsdóttir og Friðrik Örn Ásgeirsson.

Fjarðargangan var haldin sunnudaginn 15.febrúar og tókst að halda gönguna í miðbænum eins og við viljum helst gera. Útlitið hefur ekki verið bjart með snjó hér í firðinum í vetur og undanfarnar tvær vikur hefur félagið staðið fyrir skíðaæfingum upp á Lágheiði, en þar var eini snjórinn til að komast á skíði. Föstudaginn 13.febrúar snjóaði svo all hressilega hér, gamaldags alvöru stórhríð, og ljóst að ekki yrði hægt að halda gönguna á Lágheiði en opnaðist möguleikinn að halda gönguna innanbæjar eins og undanfarin ár. Reyndar ef frá er talið 2025 þar sem enginn snjór var hjá okkur í fyrra. Ákveðið var því að fresta göngunni til sunnudags, sækja troðarann á Lágheiði og gera okkar besta við að halda mótið svo sómi væri af. 
Þetta gekk alltsaman eftir, troðarinn sóttur af Smára Verktökum á föstudagskvöld og kominn í bæinn um miðnætti. Vinna hófst strax um morguninn á laugardag, færa snjó og leggja brautir. Gerður var 5km hringur sem var fínn og umgjörðin góð við tjörnina okkar í miðbænum. Alls voru 83 skráðir til leiks í mismunandi vegalengdum og þátttakendur frá 4 ára aldri til 85 ára!!!
Mótahald gekk vel, veður setti aðeins strik í reikninginn en ekkert svakalega alvarlegt. Verðlaunaafhending og tertukaffi að keppni lokinni í Tjarnarborg og Craftverslun var hjá okkur alla helgina með mikið úrval af útivistarfatnaði sem gerði viðburðinn flottari.
Kærar þakkir til allra sem lögðu hönd á plóg, takk þátttakendur fyrir komuna og takk allir sjálfboðaliðar sem komu að mótahaldinu og öllu í kringum mótið. Án sjálfboðalliða væri ekki hægt að standa í íþróttastarfi yfir höfuð.

Myndir frá helginni má sjá hér......

Öll úrslit frá Fjarðargöngunni 2026 má sjá hér.....