Flott dagskrá í vetrarfríinu

SÓ verður með flotta dagskrá yfir vetrarfríið, við hlökkum til að sjá ykkur á skíðum.

Eitthvað verður á dagskrá alla dagana en auðvitað ræðst opnun fyrst og fremst eftir veðri. Aðstæður í Tindaöxl og Bárubraut eru mjög fínar þessa dagana, þó enn sé unnið að þjöppun snjóa. Töluvert hefur snjóað síðasta sólarhring og vonandi bætir enn í næstu daga.

Allir á skíði!