Frábær dósasöfnun...

Skíðafélag Ólafsfajrðar hefur undanfarin ár farið í dósasöfnun strax eftir áramót. Vegna Covid þótti ekki rétt að rjúka strax af stað en loksins var gengið í hús á Ólafsfirði í dag. Óhætt er að segja að íbúar hafi tekið vel á móti krökkunum okkar eins og vanalega. Reyndar tóku þeir svo vel á móti krökkunum að aldrei hefur sennilega safnast annað eins!

Kærar þakkir íbúar Ólafsfjarðar!