Frábærar aðstæður á Lágheiði

Skíðafélag Ólafsfjarðar hefur flutt snjótroðara félagsins upp á Lágheiði í leit að snjó, með mjög góðum árangri!

Á mánudag var troðarinn okkar fluttur upp á Lágheiði og troðnar göngubrautir á há heiðinni. Aðstæður eru fínar, kominn rúmlega 4km hringur og færðin nokkuð góð upp á heiði.
Í dag tókum við á móti 58 manna hóp frá Hótel Sigló sem er á námskeiði hjá okkur og SSS, einnig var Hvanndalir Loge með námskeið á svæðinu auk æfinga okkar iðkanda. Það var því margt um manninn á Lágheiðinni í dag, frábærar aðstæður og veðrið lék við okkur. 

SÓ mun áfram reyna að halda úti brautum og stunda æfingar á Lágheiði meðan ekki snjóar í bænum og er nú undirbúningur fyrir Fjarðargönguna í fullum gangi, en við stefnum einmitt á að halda gönguna upp á heiði laugardaginn 14.febrúar.