Keppni lokið á Akureyri í dag

Í dag var keppt í stórsvigi í unglingaflokkum á Akureyri í alpagreinum.

Í flokki 14-15 ára endaði Skarphéðinn ellefti í lok dags og Bríet í 24.sæti. Dawid keyrði út úr í fyrri ferð og hafði þá lokið keppni.

Í flokki 12-13 ára stúlkna varð Natalía 14., Hanna Valdís 18. og Aníta Lind 21.

Flottur gangur á okkar krökkum í alpagreinunum. Dagur tók reyndar óvæntan endi þegar yngri hópurinn komst ekki heim þar sem búið var að loka Múlanum. Keppni hefst kl 8 í fyrramálið og verður þá keppt í svigi.