Á mánudag hófst 66 North Cup mótaröðin á Akureyri. Matthías Kristinsson er kominn til landsins og er á meðal keppanda.
Keppni hófst á mánudag þegar keppt var tvisvar í svigi. Matthías keyrði útúr í fyrri keppninni en kom sterkur til baka í þeirri seinni. Matthías var með þriðja besta tíma eftir fyrri ferð en gerði besta tímann í þeirri seinni og tryggði sér sigur í mótinu.
Ekkert var hægt að keppa á þriðjudag vegna snjókomu svo ákveðið var að keppa tvisvar aftur í dag í stórsvigi. Matthías átti fínar ferðir og var með fjórða besta tímann í fyrri ferðinni og annan besta í þeirri síðari sem skilaði honum í fjórða sæti. Seinna stórsvigið var svo eftir hádegi en úr varð spennandi keppni milli Matthíasar, Guðmundar Gauta og Jóns Erik. Matthías var með þriðja besta tímann í báðum ferðum sem skilaði honum öðru sætinu, Guðmundur Gauti sigraði og Jón Erik varð þriðji. Aðeins munaði 0,49 sek á Guðmundi og Jóni svo keppni var mjög spennandi.
Á föstudag hefst svo Skíðamót Íslands í alpagreinum á Akureyri. Þar mun Matthías að sjálfsögðu keppa ásamt öllum bestu skíðamönnum landsins.