Matthías Kristinsson varð í dag ellefti í svigi á heimsmeistaramóti ungmenna sem fram fer í Narvik.
Matthías var með rásnúmer 15 í fyrri ferðinni í dag og stóð sig vel í mjög krefjandi braut. Mikil afföll urðu í fyrri ferðinni en 70 keppendu kláruðu en 124 voru ræstir til leiks. Matthías gerði vel eins og fyrr segir og var með 14. besta tíma. Seinni ferðin gekk líka ljómandi vel hjá okkar manni og kom hann niður með 6 besta samanlagða tíma. Þegar topp 30 eftir fyrri ferð höfðu skilað sér í mark var Matthías eins og fyrr segir með 11 besta tímann!!!! Frábær árangur á heimsmeistaramóti.
Bjarni Þór Hauksson hafnaði í 27.sæti, Arnór Alex Arnórsson náði ekki að klára seinni og Torfi Jóhann Sveinsson hlekktist á í fyrri ferðinni.
Matthías hefur átt frábæran vetur en í upphafi tímabils var hann í sæti 386 í svigi og 784 í stórsvigi á FIS lista. Á nýjasta listanum er hann kominn upp í 156 sæti í svigi og 452 í stórsvigi sem sýnir glöggt framfarirnar í vetur.
Við óskum Matthías og fjölskyldu innilega til hamingju með árangurinn og hlökkum til að fá hann heim á SMÍ sem fram fer á Akureyri.