Fyrsti keppnisdagur á skíðamóti Íslands í alpagreinum hófst í dag á Akureyri þegar keppt var í svigi. Matthías Kristinsson var að sjálfsögðu á meðal keppanda og var með besta tíma eftir fyrri ferðina í dag. Matthías átti flotta seinni ferð líka og var með annan besta tíma í henni. Keppni var gríðarlega hörð og fór svo að Matthías varð í 2.sæti, en Gauti Guðmundsson sigraði og Jón Erik Sigurðsson varð í þriðja sæti.
Keppni í alpagreinum heldur áfram á morgun þegar keppt verður í stórsvigi.