Matthías í 33.sæti í dag.

Keppt var í stórsvigi á HM ungmenna í Narvík í dag. Okkar maður, Matthías Kristinsson ræsti þar nr. 53 og hafnaði í 33.sæti.

Matthías átti fína fyrri ferð og var í 35.sæti, ekki langt frá að ná inn í topp 30 sem hefði gefið honum enn betra start fyrir seinni ferðina. Seinni ferðin var ekki alveg eins fín en dugði þó til að keyra sig upp um 2 sæti og hafnaði hann því í 33.sæti. Alls hófu 136 keppendur stórsvigið og þar á meðal, Bjarni Þór Hauksson (30), Arnór Alex Arnósson (66) og Torfi Jóhann Sveinsson (DNF). 

Næst keppir Matthías á sunnudag í svigi ásamt liðsfélögum sínum og íslensku stelpurnar keppa á morgun, laugardag.

Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu á youtube og munum við setja inn link á sunnudag fyrir svigið.