Ólafsfjarðarmót í svigi og skíðagöngu

Í dag fór farm Ólafsfjarðarmót í svigi og skíðagöngu með frjálsri aðferð, alls voru 35 keppendur.

Byrjað var með keppni í skíðagöngu með frjálsri aðferð kl 17:20. Genginn var nýr hringur, rangsælis við það sem við erum vön og mis margir hringir farnir eftir aldri.
Að keppni í skíðagöngu lokinni var farið beint í stig um kl 18:00. Veður lék við okkur í dag, færið reyndar blautt og þungt enda um 10 stiga hiti, logn en sólin lét sig hverfa.

Frábær dagur á skíðasvæðinu okkar sem er enn með mikinn snjó og lofar góðu fyrir æfingar fram að Andrésarleikum.

Úrslit úr skíðagöngu má sjá hér...

Úrslit úr Svigi má sjá hér...