Rafræn Fjarðarganga 2021

Nú hefur mótstjórn ákveðið að Fjarðargangan 2021 verði rafræn. Við getum ekki dregið lengur að taka ákvörðun um hvernig þetta verður hjá okkur og beðið í þeirri von að einhverjar tilslakanir verði á reglum er varðar Covid 19.
Rafræna gangan okkar fer þannig fram að hægt er að ganga sína vegalengd hvar sem er. Eina sem þú þarft að gera er að senda okkur staðfestingu frá Strava, Garmin, Sport Tracker eða sambærilegu forriti um að þú hafir lokið þinni vegalengd samkvæmt skráningu. Þar með hefur þú lokið Fjarðargöngunni 2021, færð stimpil í Íslandsgöngu vegabréfið og gætir dottið í lukkupottinn með útdráttarverðlaun.
Við viljum endilega koma á ykkur Fjarðargöngu keppnisnúmerinu og þátttökuverðlaunum sem allra fyrst svo endilega sendið okkur heimilisfang og við komum þessu í póst strax! Þá gætuð þið gengið með keppnisnúmerin þegar þið gangið. (fjardargangan@gmail.com
Þar sem gangan er rafræn munum við leyfa fólki að hafa tvo daga til að ganga sína göngu, bæði laugardaginn 13.febrúar og sunnudaginn 14.febrúar.
Við munum einnig koma á sem flest skíðasvæði á landinu Fjarðargöngu logo-inu þannig að göngu lokinni getið þið tekið mynd af ykkur með Fjarðargöngu logo-ið í bakgrunn.
Fjarðargöngubrautin mun verða klár hér á Ólafsfirði fyrir þá sem vilja ganga hér og getur fólk þá komið á eigin forsendum og gengið.
Fjarðargangan er risa fjáröflun fyrir Skíðafélag Ólafsfjarðar en í skilmálum við skráningu stendur að verði ekki hægt að halda gönguna munum við endurgreiða 50% af skráningargjaldinu. Viljum við því biðja þá sem óska eftir endurgreiðslu að senda okkur bankaupplýsingar svo við getum endurgreitt, nú eða senda okkur staðfestingu á að þið óskið ekki eftir endurgreiðslu 	</div>
		<div class= Til baka