Skíða Páskar

Nú er heldur betur snjór í firðinum fagra og um að gera að nýta hann fyrst hann er nú kominn.
Við bjóðum upp á flotta opnun um Páskana í Tindaöxl, frábært færi og nægur snjór. Að sjálfsögðu verða troðnar skíaðabrautir í Bárubraut og meðfram Ólafsfjarðarvanti. Stefnum á partý á svæðinu á föstudagskvöldið, opið frá 20-22. Veðurspáin er flott, sérstaklega frá föstudegi til mánudags.

Sjáumst á skíðum um páskana!