Skíðafélag Ólafsfjarðar heldur um helgina Skíðamót Íslands í skíðagöngu. Allir bestu skíðagöngumenn landsins mæta til leiks og búist við spennandi keppni.
Við skorum á alla Ólafsfirðinga og nærsveitunga að kíkja til okkar þegar veður leyfir og fylgjast með bestu skíðamönnum landsins í öllum aldursflokkum.
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Föstudag 27.mars kl 17:00 Sprettganga, hefðbundið.
Laugardag 28.mars kl 11:00 3,5km, 5km og 10km frjáls aðferð, einstaklings start.
Sunnudag 29.mars kl 11:00 3,5km, 5km og 15km, hefðbundið, hópstart
Mánudagur 30.mars kl 11:00, Liðasprettur, frjáls aðferð.
Hægt verður að fylgjast með úrslitum mótsins hér.....
Einnig kemur allt það helsta hér inn á heimasíðuna hér.....