SÓ 19 ára í dag

Skíðasaga Ólafsfjarðar nær auðvitað miklu lengra en til ársins 2001 en SÓ var stofnað þegar skíðadeild Leifturs var lögð niður á þessum tíma. Skíðaíþróttin hafði þá verið undir merkjum Leifturs frá árinu 1975. Því miður þekkir sá er hér ritar ekki söguna nægilega vel en það stendur nú til bóta. 

En í dag er mikið um að vera hjá SÓ. Ný heimasíða félagsins er opinberuð í tilefni dagsins. Síðan er enn í vinnslu en töluvert komið inn af efni og fréttum af starfi okkar undnafarið. Mikil vinna hefur verið hjá stjórn félagsins að undanförnu og hafa foreldrar og velunnarar ekki látið sitt eftir liggja í þeirri vinnu. Búið er að reisa nýjan lyftuskúr og geymsluskúr við skíðalyftuna. Kominn er upp grunnur fyrir tímatökuhús fyrir skíðagönguna og vonumst við til að klára að reisa það hús nú í október. Mikil vinna hefur verið lögð í að laga snjógirðingar í Bárubraut og eru bara nokkrar girðingar eftir í þeirri vinnu. Snjógirðing milli 3-5 staur var færð í Tindaöxl sem breikkar brekkuna töluvert niður með lyftunni.
Framundan er svo að setja nýja ljóskastara í Bárubraut auk þess að grafa niður öryggisvír með skíðalyftunni.

Annars bara til hamingju með daginn SÓ og vonandi verða menn ánægðir með nýju heimasíðuna okkar www.skiol.is