Sprettgöngu frestað á SMÍ í dag.....

Í dag átti að keppa í sprettgöngu á Skíðamóti Íslands hér á Ólafsfirði, en því miður er veðrið að angra okkur, rok og stórhríð.

Dagskrá mótsins hefur því verið endurskoðuð miðað við veðurspá næstu daga og er dagskrá nú eftirfarandi.
Laugardagur kl 11:00, Keppni með hefðbundinni aðferð, 3,5km, 5km, 15 km. 
Sunnudagur kl 11:00, Keppni með frjálsri aðferð, 3,5km, 5km, 10 km.
Mánudagur kl 11:00, Sprettganga með hefðbundinni aðferð.
Liðasprettur er ekki ákveðinn endanlega en verður tekið fyrir á farastjórafundi eftir keppni á laugardag.

Við skorum á Ólafsfirðinga og nærsveitarmenn að koma til okkar og fylgjast með skemmtilegri keppni á morgun, laugardag. Veðurspáin er frábær, jafnvel sól og alles!

Ráslisti fyrir laugardag má sjá hér....

Fylgjast má með úrslitum og tíma hér....