Staðan 9.apríl UPPFÆRT KL 13:18

Uppfært kl 13:19
Nú hefur snóað nánast í allan morgun og brautin horfin að mestu. Við tökum stöðuna síðar í dag ef styttir upp.

 

kl 09:00
Geggjað veðurútlit næstu daga. Nú kl 9:00 er búið að troða 7,5km hring í golfvellinum í Skeggjabrekkudal. Veður er frábært hæg breytileg átt, -3° og léttskýjað.

Búið er að moka veginn uppeftir.

Á morgun verður einnig troðin braut í Skeggjabrekkudal og veðurútlit fyrir laugardag er frábært, nú er bara að skella sér út og njóta!

Brautargjald er 800 kr, millifærist á reikning SÓ, kt 591001-2720, reikn 0347-03-400665