Stefnum á góða Páskaopnun....

Undanfarnar vikur hefur veður verið með eindæmum óstöðugt. Hver lægðin á fætur annarri rúllar hér yfir svo nánast 4 daga vikunnar hafa verið óveður með mikilli úrkomu. Ekki það að við séum að kvarta yfir snjónum, en það hefur bara ekki gefist tími til að græja lyftuna og braut við Ólafsfjarðarvatn svo vikum skiptir. Við vonumst þó til að geta haft opið yfir Páskana og vonandi strax á miðvikudag, en dagskrá kemur hér inn á morgun.

Meðfylgjandi er nokkrar myndir sem sýna snjómagnið við endastöðina á lyftunni sem var hálf á kafi í snjó. Margbúið er að moka frá lyftunni uppi, en nánast jafnóðum sett snjó aftur yfir alltasaman. Veðurspá næstu daga gefur okkur þó von um að geta opnað og troðið brautir hér um allar grundir. En nánar um það síðar.