Tindaöxl opnar í dag!!!!

Þá er allt orðið klárt til að opna skíðasvæðið okkar í Tindaöxl. Bárubraut er troðin um 4km svo nú er bara að nota þetta geggjaða veður og skella sér á skíði.

Við viljum minna á að Bárubraut sem og aðrar skíðagöngubrautir á vegum SÓ eru gjaldskyldar. Hægt er að kaupa árskort á 12.500 kr eða borga í stakt skipti 800 kr. Best er að millifæra inn á reikn SÓ, kt 591001-2720, reikn 0347-03-400665

Skíðasvæðið í Tindaöxl opnar í dag og eins og venja er þá er frítt fyrir alla í fjallið í dag. Vissulega eru takmarkanir á svæðið, skálinn er lokaður nema fyrir salerni og við hugum að sóttvörnum. Þeir sem eiga árskort á skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði geta notað þau hér hjá okkur eins og venja er.