Troðin göngubraut

Í dag var troðin göngubraut við íþróttahúsið hér í Ólafsfirði. Hringurinn er stuttur eins og undanfarna vetur en frábær fyrir alla að skella sér á skíði. Æfing verður á morgun hjá krökkunum við íþróttahúsið.

Einnig ætlum við að keyra eitthvað í Bárubraut en þar vantar enn nokkurn snjó og æskilegt að fara ekki á nýjum skíðum þangað.

Nánari upplýsingar hér á heimasíðunni okkar í fyrramálið.