UMÍ og SMÍS í Bláfjöllum um helgina

Alpagreina krakkar komnir í Bláfjöll í morgun
Alpagreina krakkar komnir í Bláfjöll í morgun

Nú er að hefjast mæði Unglingameistaramót Íslands í alpagreinum og Skíðamót Íslands í skíðagöngu og fara bæði mótin fram í Bláfjöllum.

Á UMÍ eru fimm stúlkur frá SÓ: Aníta Heiða Kristinsdóttir, Bríet Brá Gunnlaugsdóttir, Hanna Valdís Hólmarsdóttir, Natalía Perla Kulesza og Fjóla María Gunnlaugsdóttir. Keppni hefst í alpagreinum í dag, föstudag, þegar keppt er í stórsvigi.

Á SMÍS eru 10 keppendur frá SÓ: Árni Helgason, Haukur Rúnarsson, Gunnlaugur Franz Gunnlaugsson, Elís Beck Kristófersson, Silja Rún Þorvaldsdóttir, Sigurlaug Sturludóttir, Svava Rós Kristófersdóttir, Guðrún Ósk Auðunnsdóttir, Ásdís Ýr Kristinsdóttir og Karen Helga Rúnarsdóttir. Keppni hefst hjá krökkunum í dag, föstudag, í liðaspretti.

Hægt er að fylgjast betur með UMÍ hér.....

Hægt er að fylgjast betur með SMÍS hér.....