Undirbúningur fyrir Fjarðargönguna

Undirbúningur er á fullu fyrir Fjarðargönguna 2021, en hún fer fram 13.febrúar. Skráning gengur frábærlega og hafa nú 188 manns skráð sig í viðburðinn hjá okkur. Þar með eru aðeins 112 sæti laus!

Það er ekki eftir neinu að bíða, skráðu þig strax og vertu með frá upphafi. Við drögum aftur í happdrætti úr skráningu á sunnudaginn 6.desember kl 21:00. En þú færð engan vinning nema vera búinn að skrá þig.